30. desember 2008 klukkan 22:44
Jćja ákvađ eftir langt hlé og mörg facebook innlit ađ fara ađ blogga aftur ekki ţađ ađ ég hafi mikiđ ađ segja en frekar ađ setja inn fleyri myndir af myndlist minni.
Er ađ hamast í myndlistaskólanum jafnframt ţví ađ vera í fullri vinnu.
Ţađ er alveg ágćtt og er ég enn á slysó náttulega og hef ţađ bara mjög
Myndir...
Nánar
Margrét Kristjánsdóttir
05. júní 2008 klukkan 13:35
Eins og þeir sem lesa þetta blogg er ég lélegust allra að blogga, hef alltaf svo mikið að gera annað. En fynnst samt pínu gaman að skrifa eitthvað bull um okkar hagi hér í hafnarfirði.
Jonni er búinn að smíða pall eða rétta sagt einhverskonar svalir á húsið sem eiga eftir að koma sér vel í sumar þ.e.a.s. ef að kemur eitthvað sumar, því þá getum við notað kvöldsólina betur hérna. Hef undanfarið verið að dunda mér í garðinum sem felst mikið í því að rétta við plöntur sem ég er nýbúin að planta eða elta þær út um allan garð í rokinu og þarf ég því ekki að fara í ræktina og hamast þar á einhverju hlaupabretti.
En nóg um það, ætla aðeins að skreppa til Danmerkur eina helgi núna í júní og hitta aldraða foreldra mína og vinkonur, en þetta verður bara svona stutt stopp, þannig að ég verð að velja úr hverja ég ætla að hitta.
Karlotta er búin að vera núna í burtu í tvær vikur og höfum við hjónin ekkert að gera í þvottahúsinu þessa dagana. Þvílíkur lúksus enginn þvottur á gólfinu né hrúgur tvist og bast. Einkennilegt er samt þó að við eiginlega söknum henar samt ekki þvottarins Nei en hennar já.
Jæja hætt í bili ætla að fara að kaupa fleiri blóm sem ég get svo elt um garðinn seinna. blessi ykkur í bili. Kvitta fyrir heimsóknina plís.
Margrét Kristjánsdóttir
23. maí 2008 klukkan 11:22
Jæja það fór aldrei svo að Íslendingar kæmust áfram í keppninni. Þau stóðu sig eiginlega bara frábærlega. Ég er evrósision fan og ég skammast mín ekkert fyrir að mér fynnst mjög gaman að fylgjast með þessu.
Enda verður smá partý af því tilefni.
Frí alla helgina alveg dásamleg tilfinning engin vinna bara leti annars er Jonni byrjaður á að laga húsið að utan, það er á stefnunni að mála það að utan. Við ætlum að breyta alveg um lit og hlakka ég til að sja útkomuna.
Ég er orðin pínu leið á að bíða eftir sumrinu það ætlar eiginlega ekkert að hlýna hérna sunnanlands, kannski væri bara ráð að flytja austur.
Jæja hef eiginlega ekkert að segja núna þannig að ég ætla bara að hætta.
Margrét Kristjánsdóttir
20. maí 2008 klukkan 21:01
Nokkrar nýjar myndir komnar í myndaalbúmið.
Margrét Kristjánsdóttir
14. maí 2008 klukkan 13:01
Jæja er nú reyndar risinn upp frá dauðum fyrir all löngu síðan en þar sem ég er mjög lélegur bloggari hef ég ekkert sest við tölvuna í langan tíma nema við vinnu.
En í dag er sólskinsdagur og ég er líklega eins og náttúran fer öll á loft við sólskinsdaga, upp upp allt mitt geð og hvað var það nú aftur.
En ég semsagt byrjuð í nýrri vinnu á slysó frábært að vera komin í húsið aftur og gaman að takast á víð ný verkefni.
Myndlistasýningin yfir staðin og mín fékk meira segja mynd af einu listaverki mínu í fréttablaðið en þar fyrir framan standa skólastjórar myndlistaskólans ég var nú ekki svo lítið montin.
Sýningin var alveg frábær og margar frábærar myndir.
Skólinn hefst svo aftur í september og verð ég að sjálfsögðu með aftur, þetta var alveg frábær hópur af kjarnorkukonum og hlakka ég til að sjá þær aftur. Jæja hætt að blogga í dag og farin út í sólskinið.
Margrét Kristjánsdóttir
17. apríl 2008 klukkan 14:47
Flensan engan veginn á undanhaldi og ég að verða létt geggjuð. Er einnig með ljótuna með stóru ELLI. Aldrei á minni lífsfæddri ævi verið eins föl, kannski hægt að líkja því við grænleitan blæ á hörundi mínu. Vorkenni sjálfri mér alveg gífurlega hósta og sníti mér á víksl. ÉG er búin að láta undan þrýstingi og ætla að hitta lækninn á eftir hef ekki mikla trú að það lagist neitt við það, þetta er bara flensa sem er kominn til að vera........
Þetta er mikið bölmóðurs blogg og ég veit það en hvað á maður að gera á barmi örvinglunar og sjálfsvorkunsemi. Ég er alveg viss um að ég nái mér aldrei til fulls verði aumingi með hor og slef the rest of my life. Basta, ef ekkert blogg verður skrifað hér næstu daga er ég dauð úr sjálfsvorkun og aumingjaskap. Sé ykkur hinumegin.
Margrét Kristjánsdóttir
16. apríl 2008 klukkan 11:26
Flensan er komin í mjósundið, hóst hóst hóst.
Er búin að liggja í viku núna í dag, er aðeins farin að hjara við en ekki hægt að hrópa húrra fyrir framförunum.
Endemisvolæði. Jæja ætlaði svona samt bara að láta vita að hér væri líf ennþá þó lélegt sé.
Margrét Kristjánsdóttir
04. apríl 2008 klukkan 13:34
Var að koma heim úr skólanum full af orku og gleði, frábært að vera í þessum skóla, maður fyllist einhverri óstjórnlegri gleði og lífshamingju að allt krepputal hverfur eins og dögg fyrir sólu. Vel á minnst sól þá er hún ekki af verri endanum í dag og bíð ég spennt eftir að geta komið hjólinu út úr skúrnum en einhver bíb bavíani hefur lagt fyrir skúrinn minn en eins og ég segi þa´getur ekkert skemmt fyrir mér þennan frábæra dag. Ég á meira að segja frí í vinnunni í dag sem er heldur ekki verra.
Ætla að hafa þetta stutt í dag farinn út í sólina bílinn er farinn........

Margrét Kristjánsdóttir
03. apríl 2008 klukkan 13:17
Þá er fyrsti dagurinn á nýjum vinnustað lokið. Ég var þarna bara eins og rati að mér fannst, veit ekki hvar neitt er og spyrjandi endalaust um hitt og þetta. En er með góðan leiðbeinanda þannig að þetta á ábyggilega eftir að bjargast allt saman.
Verð í aðlögun í 2o dag og ég held að mér veiti ekkert af því.
Annars er allt gott að frétta héðan úr Hafnarfirðinum allir bara hressir og kátir. Reyndar datt ég nú í þá grifju að velta mér upp úr kreppuástandinu eins og allir aðrir og var farin að spekúlera hvernig best væri að koma þessu fyrir . Stór hola í garðinum væri eitthvað svo leiðinlegt þar sem við erum búin að hafa fyrir því að reyna að græða upp grasið sem Emil og brúðkaup síðastliðins sumar var búið að eiðileggja. Þannið að það var ákveðið að grafa ekki í garðinum. "sko ég er að meina gröf fyrir blanka Hafnfirðinga í viðjum erlendra mótorhjólalána" Humm jæja en ég ákvað svo bara að nenna ekki að velta mér upp úr þessu lengur og láta bara slag standa og lifa meðan færi gefst.
Jæja elskurnar ætla svo að minna ykkur á þið sem enn lesið þetta blogg að sýning myndlistaskólans verður þann 3. maj og öllum velkomið að koma og sjá. Myndir mínar eru signeraðar Systa þannig að ef þið sjáið einhverja slíka þá er það mín. Endilega komið og sjáið frábær listaverk eftir marga frábæra listamenn á mismunandi aldri.
Margrét Kristjánsdóttir
13. mars 2008 klukkan 22:39
Loksins loksins loksins, komið eitthvað sem minni á vor. Vorum að koma heim frá fyrstu vorferðinni á mótorhjólunum.
Annsi frostbitinn vægast sagt, veðrið var svo yndislegt ....að sjá humm sól og vor í lofti en þegar maður er kominn af stað já segi ekki meir, þá fer nú eiginlega glansinn af því, kuldinn maður minn rrrrrrrrrrrrr.
Ætluðum í smá kaffi á Álftanesið en þegar við beygðum inn afleggjarann byrjaði rokið alveg merkilegt hvað það er mikið rok alltaf á Álftanesinu, eins og það er fallegt þarna útfrá. Varð bara að ríghalda í stýrið til að fjúka ekki af. Jæja en þegar þangað var komið mundi ég náttulega að þau væru alls ekki heima, sögðu mér það í gær að hjónakornin ætluðu til Barcelona um helgina og færu af stað í morgun, en skammtíma mynnið mitt er farið að förlast eins og svo margt annað humm, allt farið að slappast með aldrinum jammmm. Jæja komum svo bara við í staðinn hjá ungu foreldrunum í flotta húsinu sínu, vá hvað það er orðið flott hjá þeim.
Jæja ætla að láta mig þiðna í baði.
bless að sinni.
Margrét Kristjánsdóttir