Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Fyrsta vorferðin

13. mars 2008 klukkan 22:39
Loksins loksins loksins, komið eitthvað sem minni á vor. Vorum að koma heim frá fyrstu vorferðinni á mótorhjólunum.
Annsi frostbitinn vægast sagt, veðrið var svo yndislegt ....að sjá humm sól og vor í lofti en þegar maður er kominn af stað já segi ekki meir, þá fer nú eiginlega glansinn af því, kuldinn maður minn rrrrrrrrrrrrr.
Ætluðum í smá kaffi á Álftanesið en þegar við beygðum inn afleggjarann byrjaði rokið alveg merkilegt hvað það er mikið rok alltaf á Álftanesinu, eins og það er fallegt þarna útfrá. Varð bara að ríghalda í stýrið til að fjúka ekki af. Jæja en þegar þangað var komið mundi ég náttulega að þau væru alls ekki heima, sögðu mér það í gær að hjónakornin ætluðu til Barcelona um helgina og færu af stað í morgun, en skammtíma mynnið mitt er farið að förlast eins og svo margt annað humm, allt farið að slappast með aldrinum jammmm. Jæja komum svo bara við í staðinn hjá ungu foreldrunum í flotta húsinu sínu, vá hvað það er orðið flott hjá þeim.
Jæja ætla að láta mig þiðna í baði.
bless að sinni.

Margrét Kristjánsdóttir
Sæl frænka
Datt í hug að kvitta. Búin að kíkja ansi oft hér inn og farið fýluferð. Gott að þú er farin að blogga aftur og gaman að þú skulir vera farin að komast út að hjóla.... :)
Bestu kveðjur úr sveitinni
14. mars 2008 klukkan 08:44

Skrifa athugasemd