Sólskinsdagur
04. apríl 2008 klukkan 13:34
Var að koma heim úr skólanum full af orku og gleði, frábært að vera í þessum skóla, maður fyllist einhverri óstjórnlegri gleði og lífshamingju að allt krepputal hverfur eins og dögg fyrir sólu. Vel á minnst sól þá er hún ekki af verri endanum í dag og bíð ég spennt eftir að geta komið hjólinu út úr skúrnum en einhver bíb bavíani hefur lagt fyrir skúrinn minn en eins og ég segi þa´getur ekkert skemmt fyrir mér þennan frábæra dag. Ég á meira að segja frí í vinnunni í dag sem er heldur ekki verra.
Ætla að hafa þetta stutt í dag farinn út í sólina bílinn er farinn........

Ætla að hafa þetta stutt í dag farinn út í sólina bílinn er farinn........
Margrét Kristjánsdóttir
Sjáumst nú vonandi í vor/sumar...
Bestu kveðjur úr Mýrdalnum