Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Sjálfsvorkun og aumingjaskapur

17. apríl 2008 klukkan 14:47
Flensan engan veginn á undanhaldi og ég að verða létt geggjuð. Er einnig með ljótuna með stóru ELLI. Aldrei á minni lífsfæddri ævi verið eins föl, kannski hægt að líkja því við grænleitan blæ á hörundi mínu. Vorkenni sjálfri mér alveg gífurlega hósta og sníti mér á víksl. ÉG er búin að láta undan þrýstingi og ætla að hitta lækninn á eftir hef ekki mikla trú að það lagist neitt við það, þetta er bara flensa sem er kominn til að vera........
Þetta er mikið bölmóðurs blogg og ég veit það en hvað á maður að gera á barmi örvinglunar og sjálfsvorkunsemi. Ég er alveg viss um að ég nái mér aldrei til fulls verði aumingi með hor og slef the rest of my life. Basta, ef ekkert blogg verður skrifað hér næstu daga er ég dauð úr sjálfsvorkun og aumingjaskap. Sé ykkur hinumegin.
Margrét Kristjánsdóttir
Petra frćnka
 
Hvaða hvaða... Vonandi ferðu að rísa upp frá "dauðum"
Bestu kveðjur úr sveitinni.
17. apríl 2008 klukkan 21:13
Vona að þér sé batnað.
Bestu kveðjur frá Svíaríki
24. apríl 2008 klukkan 21:34

Skrifa athugasemd