Home alone
05. júní 2008 klukkan 13:35
Eins og þeir sem lesa þetta blogg er ég lélegust allra að blogga, hef alltaf svo mikið að gera annað. En fynnst samt pínu gaman að skrifa eitthvað bull um okkar hagi hér í hafnarfirði.
Jonni er búinn að smíða pall eða rétta sagt einhverskonar svalir á húsið sem eiga eftir að koma sér vel í sumar þ.e.a.s. ef að kemur eitthvað sumar, því þá getum við notað kvöldsólina betur hérna. Hef undanfarið verið að dunda mér í garðinum sem felst mikið í því að rétta við plöntur sem ég er nýbúin að planta eða elta þær út um allan garð í rokinu og þarf ég því ekki að fara í ræktina og hamast þar á einhverju hlaupabretti.
En nóg um það, ætla aðeins að skreppa til Danmerkur eina helgi núna í júní og hitta aldraða foreldra mína og vinkonur, en þetta verður bara svona stutt stopp, þannig að ég verð að velja úr hverja ég ætla að hitta.
Karlotta er búin að vera núna í burtu í tvær vikur og höfum við hjónin ekkert að gera í þvottahúsinu þessa dagana. Þvílíkur lúksus enginn þvottur á gólfinu né hrúgur tvist og bast. Einkennilegt er samt þó að við eiginlega söknum henar samt ekki þvottarins Nei en hennar já.
Jæja hætt í bili ætla að fara að kaupa fleiri blóm sem ég get svo elt um garðinn seinna. blessi ykkur í bili. Kvitta fyrir heimsóknina plís.

Margrét Kristjánsdóttir
Byð að heilsa öldruðum foreldrum þínum...