Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Er aftur farin að blogga

30. desember 2008 klukkan 22:44
Jæja ákvað eftir langt hlé og mörg facebook innlit að fara að blogga aftur ekki það að ég hafi mikið að segja en frekar að setja inn fleyri myndir af myndlist minni.
Er að hamast í myndlistaskólanum jafnframt því að vera í fullri vinnu.
Það er alveg ágætt og er ég enn á slysó náttulega og hef það bara mjög gott þar.
Ég fékk próffan hann bróðir minn í heimsókn og tók hann helling af myndum af myndunum mínum og eru þær á leiðinni hingað inn. Stefnin ég á sýningu í mars eða jafnvel ekki fyrr en í Apríl en það fer alveg eftir hversu dugleg ég verð núna á næstunni en ég er komin með helling af myndum sem koma á sýninguna. Núna er ég að mestu í svokölluðum ekspressionisma sem ég er alveg dolfallin yfir en hún er náttulega ekki fyrir alla eins og allir vita er list eiithvað sem er abstrakt í alla staði og fer stundum eftir sálarlegu ástandi fólks hvað því fynnst fallegt eða gott að horfa á alveg eins og með músikina.
Hef þetta ekki lengra í bili myndirnar koma alveg á næstunni.
Gleðilegt nýtt ár, set nokkrar nýjar mydir inn núna ps ef það tekst hah
Margrét Kristjánsdóttir

Skrifa athugasemd