Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Þorrablót

21. janúar 2007 klukkan 19:40
Í gær fórum við skötuhjú og borðuðum góðan og kjarngóðan íslenskan þorramat og enn reyndi ég að borða hákarl, alltaf jafn vondur. En kannski einn daginn verð ég nógu þroskuð til að borða hann.
En semsagt við áttum bara góða stund og borðuðum algerlega yfir okkur, en þrátt fyrir það hefði ég alveg getað hugsað mér að naga einn sviðakjamma í morgun haha.
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Hondan

20. janúar 2007 klukkan 20:56

Elskurnar mínar.
Jæja þá er ég búin að kaupa mótorhjólið, Honda shadow 750 kúpik. 2007 árgerð. Mótorhjólaköllum fynnst það kannski ekki merkilegt ég meina stórt en alveg nógu stórt handa mér, ég hef nefnilega hugsað mér að drepa mig hægt haha. Nei ég hef hugsað mér að reyna að fara varlega og verða alveg hundgömul og öllum til ama, eins og þið vitið þá lifa þeir lengst sem líðnum er leiðast.
Nú er bara að bíða eftir þýðu og vori með sól í heiði og bros í hjarta, mikið er lífið annars dásamlegt þegar öllu er á botninn hvolft.
Jonni minn þú mátt alveg keyra það líka en bara smá haha. Ullandi


Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Átakið

11. janúar 2007 klukkan 10:35






Fann þessa frábæru hugmynd á blogg síðu hjá einni gamalli skólasystur minni.
Þannig að ég stal henni náttulega, eitt kíló farið bara við að hætta að borða nammi á næturvöktum.
Sniðug ekki satt.
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Hjólið

11. janúar 2007 klukkan 10:14
 Jæja þá er það "næstum" ákveðið að þetta verði hjólið.
Honda Shadow bara flott ekki satt. með 750 kúpikum alveg nógu stórt fyrir konu eins og mig og það verður náttulega að vera svart.
Vorum á netinu í gær að skoða og þetta er líklega það sem kemst næst drauminum um hjólið sem er að verða að veruleika.
Var alltaf að hugsa um að kaupa Yamaha virago en ég er ekki alveg eins viss núna, haga mér bara eins og krakki sem er að bíða eftir jólunum, ég bíð bara eftir vorinu og hjólinu.Svalur
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Kartöflur

05. janúar 2007 klukkan 01:44
Ég er búin að hafa það þannig í dag að mig langar mest til að vera í rúminu í allan dag. Hef verið á næturvöktum tvær síðustu vikur og er farin að telja dagana þar til þeim lýkur. En semsagt 13 janúar þá verð ég aftur að manneskju en ekki nátthrafni.
Í dag var svo mikið rok og rigning að það var eiginlega bara yndislegt að kúra undir sæng og hlusta á rigninguna dynja á gömlum veggjum og rúðum á gamla húsinu sem hefur staðist tímanns tönn.
En svo var ég hastarlega rekin aftur til lífsins þegar dóttir mín var að reyna að elda kvöldmat og vissi ekki hvað ætti að sjóða kartöflur lengi. Halló hvar hefuru verið undanfarin 18 ár. Er ég algerlega að tapa mér í uppeldinu?
Hvernig stendur á þessu eiginlega?
Jæja en maturinn tókst nú samt á endanum og karftöflurnar voru soðnar.
Ekki meira að sinni. Blessi ykkur öll

Margrét Kristjánsdóttir
2 athugasemdir

Afturendi

04. janúar 2007 klukkan 12:22
 Þetta er það sem ég er að tala um!!!!!!!!
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Átak

04. janúar 2007 klukkan 12:17
Hef eins og áður hefur verið sagt hérna á þessu bloggi eða hinni síðunni minni verið rætt um lífstílsbreytingu. Þið munið borða hollari mat hreyfa sig meira vera betri á allan hátt líka við menn og mýs.
Jæja ég ákvað um áramótin að hætta að borða nammi. Já bara alveg, hrikalega er það erfitt ég er reyndar búin að standast það núna í cirka 22 klukkutíma, eins og þið kannski vitið vinn ég mikið á næturvöktum og það er sjoppa sem við erum með hérna og freistingarnar eru hræðilegar. En er að reyna. Aftur á móti er búið að vera ostaveislur á deildinni æ ofaní æ núna síðustu daga og ég veit ekki alveg hvort er betra að borða mikið af ostum eða úða í sig súkkulaði. En ég er að reyna.
Elskurnar mínar á deildinni, hættið nú að koma með allt þetta gúmmulaði með ykkur í vinnuna, ég veit að þið viljið vel en ég er að verða að offitusjúkling og verð ábyggilega að fara í magaminnkunaraðgerð að ári liðnu ef fer framm sem horfir.
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

04. janúar 2007 klukkan 07:29
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Kötturinn Bjartur

04. janúar 2007 klukkan 07:28
Jæja þá er Bjartur (kisi)að verða hressari held ég allavega fór garpurinn út og kom ekki heim í sólarhring.
Er búin að vera á sýklalyfjum greyið.
Einnig heyrði ég í pabba í dag var að koma úr aðgerð og er allur að hressast. En mikil aðgerð og er með slöngur út um allt kallgreyið.
Mömmu líst held ég ekkert á blikuna.

Vel nu er vore kat kommet hjem har været med kateter og infusion på grund af urin stop havde ikke tisset i et dögn, men nu tisser han til gengæld hele tiden og er under opsevation hele tiden da han ikke kan styre det den stakkel. Ellers har han været ude at kigge på damer det sidste dögn Men min kat kuglerne er altså væk også. Så de kan ikke bruges til noget min skat.
haha.
Jonni syntes det var meget synd for ham at blive steriliseret og var helt nede på grund af det, man skulle næsten tro at det var han som blev steriliseret.
Vel mine venner i Dk håber i har det godt og glædeligt nyt år.
Margrét Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

nýja bloggið mitt.

03. janúar 2007 klukkan 01:11
Soffíanjæja þá er ég kominn með nýja bloggsíðu vegna mikilla kvartana símleiðis yfir aþ ekki sé hægt að kommentera á síðunni mynni, reyna að gera bragabót á því með að byrja hreinlega á nýju vefsvæði.
Ekki ætla ég að hafa þetta langt að þessu sinni.
sé jú gæs.

Lét herna fygja mynd af gömlu skólarútunni minni. Annsi er hún léleg greiið.
Margrét Kristjánsdóttir
1 athugasemd